Byrjuð aftur að blogga

Já, ég ákvað að byrja aftur að blogga.  Af hverju?  Ég veit það bara eiginlega ekki.  Er ekki einu sinni viss um að ég ætli að segja neinum frá þessari slóð.  Verður bara fyrir mig til að fá útrás fyrir mínar tilfinningar og koma þeim niður á blað.  Sjáum til hvað gerist.

 Byrjaði daginn á að sofa svona líka svakalega yfir mig.  Vaknaði þegar ég átti að vera mætt í vinnuna.  Great!!!!  Skil ekki hvað gengur á hjá mér stundum á morgnana.  Það er eins og það sé einhver púki inní mér sem stjórnar því hvort ég ýti á snooze eða ekki og ég ræð engan vegin við hann stundum.  Er einhver sem á við þetta vandamál að stríða? Saklaus

 Dagurinn leið síðan bara frekar hratt enda var ég í vinnunni til 6.  Þurfti að tala við eina mömmuna þegar hún kom að sækja stelpuna því hún var búin að gera allt sem hún gat til að brjóta allar reglur í allan dag.  Alltaf skemmtilegt að díla við svoleiðis. 

 Fór svo út að borða á einn af uppáhaldsstöðunum mínum í kvöld, Coastal Flats.  Yummí salötin þar eru "To Die For". 

Læt þetta duga í bili.  Það er eins gott að ég vakni á réttum tíma.  Skal takast að hafa tíma til að hella uppá kaffi.  Það reddar öllu þegar maður er að byrja daginn. 

 

Knús knús

Heyrumst síðar.

Krissan


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband